Lendi í þessu blessuðu mótmælum bílstjóra í dag og já þeir bara svínuðu inn á Miklubrautina á ca. 10 km hraða og við hin saklausi almúgi á leið upp ártúnsbrekkuna á okkar 80 km... .og maður þurfti að snögghemla þar sem þeir keyrðu bara beint inná og það vantaði ekki mikið uppá að maður skylli í hliðina á þeim... enda gaf ég þeim eitt stórt F-merki og langt flaut...!!!! Ég studdi þessi mótmæli til að byrja með en nú er nóg komið, ef fólk ætlar að mótmæla mótmælið þið þá löglega og ekki með háskaakstri... Stöð 2 sýndi í fréttunum í kvöld frá þessu atviki og erum við Sjúmmi í sviðsljósinu og einungis vegna mikilla aksturshæfileika gat ég komist í veg fyrir að klessa á þá og komst í gegn áður en þeir lokuðu!!!!!!!!!!!! Sturla reyndu að stjórna þessum félagsmönnum þínum aðeins betur og kenndu þeim að aka inn á stoðbraut!!!!
En wells talandi um að vera á bíl....jebbs fór á bílasölu um daginn ... aka Ingvar Helgason... og prufukeyrði nýja Subaru Impresa.... vá klikkaður bílll he will be mine soon... alveg eins og sumir aðrir... hehehe.... en til að lýsa tilfinningunni á akstrinum þá leið mér þannig að ef ég væri strákur þá hefði ég haft standandi standpínu allan tíma :) heheheh
jæja ætla að halda áfram að njóta lífsins og mótmæla mótmælum bílstjóra......
Los Penguinos.....
6 ummæli:
Ég sé ekki betur en það hafi verið Sjúmmi sem bjargaði þessu. Hann tók greinilega völdin þegar þú byrjaðir að rása um allar akreinar. Svo ferðu beint og prófar nýjan bíl!!!! Svei þér frænk...
ja sko... hérna ég prufaði bílinn áður en þetta gerðist... og sé núna að Sjúmmi er bestur í heimi... Los Penguinos..
Ertu kannski að breytast í karlmann? Spurning þá um að endurskoða samband okkar sem lauk nýlega ;) hahahahha
búin að horfa á þetta aftur og aftur og aftur á visir.is og þetta er eitt stórt hneiksli.
Sjúmmi er alveg bestur !
já þetta er nú kannski búið að ganga aðeins of langt..
haha já ég heimta að fá að koma
með í bíltúr !! :o)
Thanks in suρpoгt of sharing such a goοԁ
opinion, piece of wгiting is plеasant,
thаts why i hаve read it fullу
Feel frеe to visit my page; http://www.tensunitsupplies.com
Skrifa ummæli