mánudagur, febrúar 27
jebbs vildi bara láta vita að ég er á lífi eða svona næstum. Það sem hefur aftrað reglulegu bloggi er að það er allt brjálað að gera í vinnunni og því lítill tími til að gera neitt annað en að vinna í vinnunni alveg ömurlegt ;) en svona er þetta víst. maður á að vinna þegar maður er í vinnunni, hehehehhehehe.
EN aðal fréttirnar í mínu lífi þessa dagana er að ég er að fara til New York þann 24. maí og kem ekki heim aftur fyrr en 2. júní, jjjjjeeeeeiiiii get ekki beðið eftir því að fara í fyrsta alminnilega fríið mitt yfir æfina. Ferðafélagi er hún Inga Heiða og ætlum við að gera allt þennan tíma sem við verðum út og við fáum líka bestu gistingu í heimi eða heima hjá honum Tonio :) úfff hvað þetta er spennandi jeiiiii jeiii jeiiii jeiiii .....
en vonast til að geta bloggað eitthvað á næstunni en ef ekki þá vona að þið sýnið mér e-pínu skilning :) Harps le penguin.
föstudagur, janúar 20
- Klikkað mikið að gera í vinnunni sem er bara gaman :) en vonandi að ég fari að sjá augunum út :)
Annars allt fínasta fínt að frétta,
- búin að missa 12 kg allt að koma....................
- Er á leið til Manchester á morgun með 31 karlmann á leik Man UTD v. Liverpool
- það er búið að sjá mér fyrir hjásvæfu allavega í kvöld :)
- og sjúmmi brunar um frostnar snjóþaktar götur RVK eins og ekkert sé.... Besti bíll í heimi :)
Sjáumst og heyrumst síðar le penguinos.....
fimmtudagur, janúar 5
fimmtudagur, desember 22
miðvikudagur, desember 21

Jebbs mánudags blúsinn er alveg farinn :) ........................ og tillhökkunin við að komast héðan úr borg óttans til Akureyrar og í faðm fjölskyldu og vina er tekinn við :)
En allt að verða crasí hér í boltanum og maður hefur ekki undan að selja fólki jólagjöfina í ár til eiginmanna eða starfsmanna. Bara gaman..........
............... svo er ég komin með söfnunarpoka en í honum eru 3 nóa síríus stjörnu konfektsmolar og tveir súkkulaðibitar :) jibbí held þessu áfram þar til klukkan slær 16.00 þann 24. des og byrja á fullu að háma í mig namminu í kirkjunni á Svalbarseyri :) hehehehe nei nei er ekki svo desperate og það ótrúlegasta við þetta blessaða nammi bindindi er að þetta er ekkert mál en þegar "stóri dagurinn" nálgast þá er löngunin að byrja fyrr enn sterkari. Við Inga Heiða erum búnar að eiga erfið síðustu kvöld vitandi að hún á bland í poka upp í skáp.......... En við komumst í gegnum þetta :)
Wells ef ég kemst ekki í að rita eitthvað frekar hér inn fyrir jól þá vil ég óska ykkur lesendur góðir
föstudagur, desember 16

Bara aðeins að prófa og ath hvernig þetta myndadæmi virkar :) ég og imbolæn á góðri stund á einum af okkar myndaflippum :).
Jæja það er að koma helgi og jólahlaðborð í kvöld vííííí gaman gaman. Og svo klipping og gaman á morgun og svo bruna ég upp í Hafnarfjörð í 66 gráður norður til að fá stórt knús frá besta bró í heimi og svo kannski maður kíki í fína jólabæinn í Hafnarfirði :).
Góða helgi mates og heyrumst le penguin...............
miðvikudagur, desember 14
fimmtudagur, desember 8
mánudagur, desember 5
Jebbs náði að halda áfram á sömu braut, bjargaði einni stúlku um helgina en það var ekki eins mikið drama og síðustu helgi. :) en ég er að ná þessum súper ofur hæfileikum á góða braut :)......
Fór í massa gott partí á laugardagskvöldið og það sem var það súrealískasta við það er að það var haldið í sömu íbúð og ég var í partíi í ágúst en samt sitt hvor legjandinn. Þannig ég er búin að sjá sömu íbúðina með sitthvorum húsgögnum og áherslum. Mjög fróðlegt :) en viti þið að það var ekki svo mikill munur á þessu, næstum eins!!
Wells þeir sem vilja fara á leikinn Barcelona v. Real Madrid þá á ég 3 sæti laus og því um að gera að hafa samband sem fyrst....
kv The penguinos
fimmtudagur, desember 1
þriðjudagur, nóvember 29
fimmtudagur, nóvember 24
miðvikudagur, nóvember 23
Já já er líka búin að vera nammilaus í næstum mánuð og það er bara ekkert erfitt, hver hefði trúað því? allaveg ekki ég!!!!!! En búin að taka þá ákvörðun að nammi verður leyft frá kl. 1600 þann 24 desember til kl. 16.00 þann 26 desember, og svo bindindi í ég veit ekki hvað langan tíma? Kannsi þar til á páskadag :).
Úfff þoli ekki stundum þegar ég get sett saman spennandi ferð eins og tildæmis tónleikaferð til Glasgow á Robbí nokkurn Wiljams í sept á næsta ári og þá akkúrat sömu helgi í Glasgow er risa stór ráðstefna og þar af leiðandi engin hótel til :( . Svo ætlar maður að plana ferð til Barcelona því það eru bein flug til BC akkurat þá helgi sem STÆRSTI leikurinn er í bangi BC v. RM og vitir menn allir miðar og hótel uppbókað arrrrrggggg en ég skal redda þessu öllu saman. :)
Wells ætla að reyna að finna eitthvað útúr þessu öllu
Adios amigos Mr Harpur
mánudagur, nóvember 14
úff hvað það var gaman um helgina :) verslaði og verslaði sem ég ætlaði ekki að gera dammmm en ég á því nýja úlpu, stígvel og margt margt fleira.
Veit ekki alveg hvort ég þori heim um jólin þar sem bróðir minn ætlar að taka mig í gegn ef ég hef eitthvað borðað nammi eða verið í sukki. en sko borðaði ekkert nammi og reyndi að passa matinn og að drekka nóg vatn, en sko viðurkenni alveg að gin og bitterlemon voru oft við hlið mér. alveg merkilegt hvað þessir félagar eru skemmtilegir og góðir :) mmmmooohhhhhaaaaa.
Hótelherbergið var með útsýni yfir Westminister og Big Ben, það voru Bell Boys sem tóku á móti okkur með gull vagn og tóku töskurnar okkar og fóru með upp á herbergi og það besta við þessa stráka var að þeir voru klæddir svörtum frakka með kúluhatt, bara flottir.
Föstudagurinn fór í að skoða hótel, laugardagurinn fór ég til Sutton og hitti vini þar og verslaði aðeins og svo sunnudagurinn var eiddur á Oxford street til að versla aðeins meira :).
wells vinnan bíður svo heyrumst síðar, the penguin eða eins og ég var titluð á hótelinu Mr Harpur Steffansdottir
þriðjudagur, nóvember 8
föstudagur, október 21
1. Jón Ólafsson, aðstoðarmaður minn eyðir góðum tíma
2. í erfiðisvinnu og frágang. Hann vinnur sjálfstætt og eyðir ekki tíma
3. í snakk og blaður. Hann veigrar sér
4. ekki við að aðstoða vinnufélagana og hamast
5. við að klára verkefninn tímalega. Oftast tekur hann
6. sérstakan tíma í verkefnin svona eins og til að forðast
7. miklar pásur. Jón hefur akkúrat enga
8. sérstaka ástríðu á sjálfum sér og mikla
9. kunnáttu á sínu sviði. Jón er gott að
10. aðlaga og nýtur reynslu sem engin má
11. vera án. Ég legg til að Jón verði af-
12. skaplega fljótt gerður að yfirmanni á góðum launum og yfir-
13. greiddur í eitt skipti fyrir öll
14. Það er uppástunga mín að hann verði gerður að forstjóra
15. við fyrsta tækifæri sem gefst.
Stuttu seinna fékk yfirmaðurinn sem hafði fengið þetta bréf e-mail:
"Bölvað fíflið stóð yfir mér þegar ég skrifaði meðmælin sem ég sendi þér fyrr í dag.
Vinsamlega lestu aðra hverja línu sem eru með oddatölunum".
föstudagur, október 7
Já besti dagurinn í vikunni þar sem það er svo margir spennandi möguleikar framundan til að eyða næstu tveimur dögum, djamm, ferðalög, versla og hanga og gera ekki neitt :).
En smurningin gekk vel allavega er Sjúmmi glaður :)
svo var ég Klukkuð af tótanoff takk ekki fyrir þetta eða var ég klukkuð af Kötu, arrrgg man það ekki en allvega þá hef ég ákveðið að tileinka klukkinu hinni flullkomnu konu, þar sem ég er eitt stk af hinni fullkomnu konu og hér koma ástæðurnar;
- Ég sé um að koma fólki (aðalega strákum) á enska boltann og hef ótrúlega góð sambönd við aðila til að fá bestu miðana á besta verðinu, og þarf að horfa á enska boltann vegna vinnunnar!
- Ég er hin sanna íslenska kona þarf ekki á karlmanni að halda, get séð um mig sjálf. Eins og sagt er "kona án karlmanns er eins og fiskur án reiðhjóls"
- Ég á saumavél, bíl og flottan dótakassa sem hver kona getur öfundað mig af!
- Ég á ekki uppþvottavél né þvottavél (fæ þvottavélina hennar Ingu H lánaða að vísu) heldur geri ég þetta í höndunum eins og allt annað, elda, baka brauð og já margt fleira...............
- Og að endingu ég veit hvað ég vil, er ekki eins og gellan í Litle Britann sem segir alltaf "je but, no but, je but!!
Svo þar hafi þið það :) elska lífið :)
Svo nú er framundan hin mesta skemmtihelgi. Hanna kemur í kvöld, idol partý heima og hver veit nema VV og B á Players í kvöld. 30 ára afmæli hjá Signý á lau.kvöld og svo matur hjá Ömmu bestu Erlu á sunnudagskvöldið, myndi nú segja fullkomin uppskrift af fullkomri helgi.
Heyrumst og sjáumst Harps the penguinos :)
P.s klukka humm hugsa það þar til næst :) en koma so.. commenta :)
þriðjudagur, september 27
já ekki mikill munur á þessum orðum því ef þú segir þau upphátt og hratt hljóma þau eins. Var að hringja á verkstæði og ath hvort ég þyrfti að panta tíma til að láta smyrja bílinn minn og þessi elska sagði "nei nei þarft þess ekkert bara mæta glöð" en ég roðnaði frá tám upp í heila því mér fannst hann segja "nei nei þarft þess ekkert bara að mæta gröð" Jebbs ég þurfti að segja ha? og komst að sannleikanum, að ég held en hver veit??? Úfff hvað mér kvíður fyrir að fara á eftir. En svosumm ekkert mál að mæta gröð eða glöð, þar sem ég er single og yfirleitt mjög kát gella. Svo þið megið velja!!!!!!! heheheh
Tótanoffff klukkaði mig ohhhh þoli ekki þannig en klukkið, klikkið er að koma... kem með það með sögunni eftir smurninguna á Sjúmma eða mér thhhiiii, fer eftir öllu........... "common live alitle" kannski Hemmi hóra verður þarna :) hehehhe hver veit.
kv Harps the penguinos




