fimmtudagur, maí 10
sunnudagur, maí 6

fimmtudagur, maí 3
miðvikudagur, maí 2
miðvikudagur, apríl 25
þriðjudagur, apríl 24
Jebbs búið að vera pínu mikið að gera þennan mánuðinni. En ég komst norður um páskan sem var bara æðislegt. Fór alla leið á Raufarhöfn sem er náttúrulega draumaparadís Íslands "svona næstum" en jú æðislegt að koma og vera með stelpunum mínum. Fór svo meiraðsegja á balla á Rúben. Svo var það bara að bruna aftur "vestur" á Akureyri eyða einum degi þar áður en maður brunaði aftu í borg óttans.... Mjög góðir páskar .....
Fór svo til Thorshafnar í Færeyjum um helgina og var það alveg frábær helgi. Fór þangað á ferðaráðstefnu... en það var ákveðið á leiðinni yfir hafið (af mér og Davíð) að annaðhvort yrði skemmtilegt eða leiðinlegt! Auðvita var fyrri kosturinn fyrir valinu og það var helt í sig á klst ... og ég og Davíð (maðurinn minn í Færeyjum) ultum útúr velinni... og svo bara hélt helgin áfram þannig... með mjög litlum svefni og kannski einum of mörgum Föreyjar Bjór og Ákavíti. Þema helgarinnar var nafnið Davíð þar sem ég hitti og kynntist bara drengjum sem heita Davíð, David eða Davide svo þetta var mjög einfalt fyrir mig... svo næsta helgi verður það örugglega Jón, john og jonh...
Myndir koma svo fljótlega.....
kv The Penguin
mánudagur, mars 26
fimmtudagur, mars 22
þriðjudagur, mars 13
var þetta kannski einum of formlegt??? heheheh
wells það er sosum ekkert að frétta, bara mikið að gera og þegar maður kemur heim úr vinnunni þá vil ég helst ekki kveikja á tölvunni ... eða hvað þá að hringja en ég elska þegar það er hringt í mig .... frekar skrítið en ég er bara svoooo ekki góð að taka upp tólið og hringja svo ég vona að þið fyrirgefið mér... þetta þýðir ekki að ég hugsa ekki til ykkar.....
Wells fór til London 2-5 mars og var það mjög fín ferð... Fjóla kom með og við fórum í "vinnuferð" að skoða hótel og auðvita fara á leik... kannski í þessari ferð var farið í fleiri búðir en hversu mörg hótel voru skoðuð..... en leikurinn var ágætur en ekkert mega góður..... Fór svo og hitti Önnu sem vann með mér á discover og var það frábært að hitta hana og sjá drengina hennar :) takk fyrir mig Anna og Darren.
Svo er komið öruggt á planið;
- 18 - 21 maí til Liverpool .....
- 5-10 Júní til edinborgar bara spennandi og gaman :)
Ætla að skella mér í leikhús á laugardaginn með nágrannanum og sjá ÁST hlakka mikið til, langar mikið til að fara á Bar Par einhver sem vill koma memm?
Endilega kvittið fyrir ykkur og hlakka til að sjá sem flesta sem fyrst.... knús penguins
sunnudagur, febrúar 18
- 2-5 mars London - Arsenal v. Reading hlakka bara til að sjá hann Henry le bababú....
- maí - Alicante - La Manga (spa resort með meiru)
- Júlí - Köben - verð á Tivoli Cup - fótboltamót fyrir yngri flokka..
- svo var það Road trippið - júlí/ágúst eða ágúst/sept.... verð að geyma skipulaginunguna aðeins lengur þar sem ég held ég komist ekki í júlí/ágúst ferðina og ég veit ekki hvað Sigga og Edda geta?
- Kúba í November.... frí :)
Já já alltaf að ferðast og gera eitthvað ekki leiðinlegt en trúið mér þetta getur stundum verið erfitt og leiðinlegt.... En maður verður að njóta augnabliksins.
Vikan sem leið þá mætti draumurinn minn til Landsins a.k.a Jude Law er að hugsa um að horfa núna á Alfie til heiðurs hans og veru hans hér... skil samt ekki eitt... hann fór í Laugardalslaugina og á skauta í Laugardalnum en kíkti ekki í heimsókn til mín???? ég meina ég er þarna mitt á milli þessa tveggja staða svo hann ætti nú að hafa getað kíkt... but wells bara næst...
Svo kom uppáhaldið mitt frá því í Eurovison 2006 og hann var að spila með Palla á Nasa í gær en ég fór ekki ...... skít mig ef ég frétti að Jude hafi verið á Nasa líka í gær og ég hafi ekki farið þar sem VINIR mínur voru ekki að nenna að fara....... eða ég fann engan sem hafði tíma :(
jæja hætt að kvarta og farin að horfa á Alfie.....
miðvikudagur, febrúar 7
Jebbs fannst kominn tími til að fara á skólabekkinn aftur og skráði mig á 2 námskeið í HR sem heita Rekstur fyrirtækja og fjármál fyrirtækja sjá nánar hér; http://hr.is/?PageID=449
Já var orðin eitthvað leið að vera ekki í skóla og svo er ég náttúrulega að undirbúa það þegar ég tek við rekstrinum á þessari fínu búllu og bossinn fer að spila Golf á Spáni.....
Hélt náttúrulega að ég myndi ekki þekkja neinn en Harpan er fræg eða þekkir allataf einhvern einhverstaðar eins og sumir vita... en við erum 11 á þessu námskeiði og ég þekkti 2 herramenn eða kannski réttast kannast við annan og hinn fyrverandi fyllerísfélagi úr tveimur fótboltaferðum þannig við höfum nóg að pískra um hehehehhehe.... en nei nei maður pískrar ekki við erum fullorðin í fullorðins skóla eitthvað annað en HA með Kötu skötu heheheh those were the times.... finnst samt alveg vanta hana eða Nonnsan.... spurning hvort þið komið ekki bara suður á þessi námskeið.... ???? hummmmm
Svo var náttúlega planið að ná í eiginmanninn á þessu námskeiði....... sjáum hvernig það gengur....held það sé dauðadæmt nú þegar....... vonandi að einhverjir álitlegir gæjar verða í Fjármál Fyrirtækja........
Wells verð að vinna hehehe ef ég ætla einhvertíman að taka hér við ..... Le penguinos
P.s USA ROAD AND SHOpping spree áætluð dagsetning 21-5 ágúst :)
miðvikudagur, janúar 31
- Chicago...
- Detroit....
- the grate lakes (sól, sandur og fjör)
- Niagara Falls
- Ef flogið heim frá Baltimore - Washington D.C.
- Ef flogið frá Boston - New York og Boston...
- og alls konar B&B's, SPA hotel og litla smábæi í USA.
- Mix af hrárri gistingu og lúxsus...
- finna eitthvað nýtt á hverjum degi....
- prófa eitthvað nýtt á hverjum degi....
- og hafa þetta sem ódýrast (þess vegna ódýr gisting til að eiga fyrir lúxsusinum)....
Svo hver er memmm og hver er til í að plana með :) let me know......
Ef einhver hefur betri hugmynd endilega komið með hana :)
laugardagur, janúar 27
- Bímað mig bara í burtu (með saumavélina auðavita)
- Stoppað tímann og hlaupið í burtu (með saumavélina auðvita).
- eða bara látið jörðina éta mig .....
en nei ekkert af þessu 3 gerðist eða ég hafði hæfileika til að gera ... heldur þurfti ég að skammast mín klikkað mikið á meðan hann fullvissaði mig og félagana að ekkert væri að svélinni. og svo varð ég bara að labba út eins og sönn gella og ekkert hafði ískorist....
úff fhvað ég skammaðist mín þarna..... þetta var alveg vandræðilegasta augnablik 2006.
miðvikudagur, janúar 24
En ekkert sérstakt að gerast hér á suðurlandinu fyrir utan að allur snjórinn er næstum farinn og held í fyrsta skiptið í langan tíma sem ég virkilega sakna snjósins.... skrýtið hvað maður breytist stundum...
Fór á Babel á sunn.kvöldið og mæli alveg með henni en ath hún er öðruvísi þ.e hæg en mjög áhryfarík.
allt dótið sem ég keypti um daginn virkar líka þetta fínt og ég elska nýju vekjarklukkuna mína þar sem ég sofna útfrá yndislegri tónlist og vakna við hana :) lovely líf hér :)
Held þetta sé allt í bili svo seeja later mate
þriðjudagur, janúar 16
mánudagur, janúar 15
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við grýlukertum en þau eru víða að finna þessa dagana. Segir lögreglan, að nokkur hætta geti stafað af grýlukertunum og því sé full ástæða til að hvetja vegfarendur til að sýna aðgát."
- á maður að horfa upp þegar maður labbar um gangstéttir borgarinnar? og eiga þá í hættu að labba á næsta vegfarandi sem er einmitt að gera það sama eða ganga á næsta ljósastaur?
- á maður að læðast um og ekki segja orð því maður á að sína aðgát....gæti hrætt grílukertin ef það er of mikill hávaði..... hver veit
- eða bara ekkert að vera úti á labbbinu við hús borgarinnar á meðan það er snjór?
Skil ekki alveg þessa aðvörun........ hvað haldið þið.....?
miðvikudagur, janúar 10
En byrjum árið á Mottóinu fyrir árið 2007..........................
- Lífið á ekki að vera rólyndis rölt að grafarbakkanum með það að markmiði að komast örugg á áfangastað í huggulegum og vel varðveittum líkama. Miklu heldur á það að vera blússandi gleðibuna og ískrandi yndisflug með súkkulaði í annarri og vínglas í hinni í fullnýttum og gatslitnum skrokki öskrandi… Fjárans fjör sem þetta er!
hasta la vista babý :)
fimmtudagur, desember 21

bara að vinna í einn dag í viðbót og svo er maður kominn í jólafrí :) vvvvíííííí en held að það stefni allt í það að ég verði með flensu og kvef öll jólin. Er núna að verða mjög slöpp með fullt nef af hori og þrísting í heilanum(kannski vegna þess ég er búin að pæla svo mikið hvað ég á að gefa "sambýliskonunni" í jólagjöf)... en vona að þessi veiki verði ekki að veruleika....
- var að pæla; má ég hata einhvern þó ég þekki hann ekki persónuleg....???? þarf virkilega að hata þessa manneskju því þvílíkan dóna hef ég aldrei hitt... þó manneskjan sé með eitthvað posss eftirnafn þá þarf maður ekki að hegða sér eins og já veit ekki hvað......... og því spyr ég má ég hata hana þó ég þekki hana ekki persónulega?
Jæja jólin eru tími kærleiks og friðar svo við getum gleymt þessu hér að ofan :)
óska ykkur öllum gleðilegra jóla og takk æðislega fyrir frábært ár sem er að líða og vona að það nýja verði jafn skemmtilegt og viðburðaríkt.
luvs and hugs Harps le penguinos
miðvikudagur, desember 13
Var að koma heim frá höfuðborg tónlistarinnar og fótboltans Liverpool.... frábær ferð í alla staði þar sem mikið var drukkið, borðað og já horft pínu á fótbolta...
- Laugardagurinn byrjaði á að ég hitti níu jakkafataklædda scotsers og við fengum okkur einn góðan drykk á barnum. svo var haldið upp á anfield þar sem við fórum í stúkuna okkar og borðuðum þar 5 rétta máltíð áður en leikurinn byrjaði kl. 15.00, minns var orðin pínu tippsí á þeirri stundu.... ennn hehehheh svo byrjaði þessi líka leiðinlegi leikur... hefði örugglega verið meira spennandi að horfa á Krikkett.....en það var óneytanlega þægilegt að sitja inni í hlíjunni á meðann hinn almenni jón skalf úr kulda fyrir framan okkur heheheh vorum komin svo á hótelið um 18.00.
- sama kvöld var farið út að borða, já eftir 5 rétta máltið var samt farið út að borða og fórum við á einna af mest posss stöðum Liverpool "The Livingroom" æðislegur matur.. Gareth kom okkur á gestalista klúbbsins og fórum við þangað eftir nokkra Costmó.... en þegar inn var komið varð maður að vera á öðrum gesta lista til að komast inn á vip svæðið og Gareth kom okkur inn þar,,, og sá staður var ég meina það eins og kliptur úr Footballers wifes.... stelpurnar voru allar þannig,, leið eins og mestu sveita gellu ever eða the worst tailer trach eitthvað en eftir stutta stund voru stelpurnar út Girls Aloud komnar á staðinn og svo nokkrir Liverpool leikmenn... Peter Crouch, Steve Finnan, Jamie Carragher og Dirk Kuyt en ekki halda að ég þekki þessa gæja mér var bent á þetta..... ;) heheheheheheh
- Sunnudagurinn fór mestur í þinku og svo horfa á Chelsea v. Arsenal og svo út að borða og djamma og skemmta sér....
jebbs semsagt ferðin fór í eta, drekka og vera kátur :) mjög gaman.... jæja gangi ykkur vel að undibúa jólin gæskurnar mínar.... veit þetta gengur ekkert hjá mér.....


