föstudagur, apríl 11

Já það er allt búið á Lundinum í bili og hversdagsleikinn tekinn við og hefur bara fyrsta vikan gengið mjög vel.... er alveg að ná þessu hvað það er GOTT að hreyfa sig, þetta er ekki eins mikil kvöð núna eins og hefur alltaf verið :) ég er sko alveg í skýjunum yfir því.. en að öðru...............

Lendi í þessu blessuðu mótmælum bílstjóra í dag og já þeir bara svínuðu inn á Miklubrautina á ca. 10 km hraða og við hin saklausi almúgi á leið upp ártúnsbrekkuna á okkar 80 km... .og maður þurfti að snögghemla þar sem þeir keyrðu bara beint inná og það vantaði ekki mikið uppá að maður skylli í hliðina á þeim... enda gaf ég þeim eitt stórt F-merki og langt flaut...!!!! Ég studdi þessi mótmæli til að byrja með en nú er nóg komið, ef fólk ætlar að mótmæla mótmælið þið þá löglega og ekki með háskaakstri... Stöð 2 sýndi í fréttunum í kvöld frá þessu atviki og erum við Sjúmmi í sviðsljósinu og einungis vegna mikilla aksturshæfileika gat ég komist í veg fyrir að klessa á þá og komst í gegn áður en þeir lokuðu!!!!!!!!!!!! Sturla reyndu að stjórna þessum félagsmönnum þínum aðeins betur og kenndu þeim að aka inn á stoðbraut!!!!

En wells talandi um að vera á bíl....jebbs fór á bílasölu um daginn ... aka Ingvar Helgason... og prufukeyrði nýja Subaru Impresa.... vá klikkaður bílll he will be mine soon... alveg eins og sumir aðrir... hehehe.... en til að lýsa tilfinningunni á akstrinum þá leið mér þannig að ef ég væri strákur þá hefði ég haft standandi standpínu allan tíma :) heheheh

jæja ætla að halda áfram að njóta lífsins og mótmæla mótmælum bílstjóra......
Los Penguinos.....

miðvikudagur, mars 19

Já SÆLLLLLL...................
Já þá er önnur, þriðja og fjórða vikurnar búnar og þetta gengur bara mjög vel og alltaf nóg að gera og meira en það... það leka af mér ca. 2-3 smjörlíkisstykki á viku :) gleði gleði happy joy joy...
við erum 8 hressar stelpur/konur í hóp og kemur okkur mjög vel saman og mikið hlegið og mikið skemmt sér. Ég kem sjálfri mér alltaf jafn mikið á óvart hvað ég er rosalega skemmtileg, falleg og allt það... nei nei bara hvað ég get meira en ég býst við :)
Er að fara til Manchester á föstudaginn og ætlar hún Inga Heiða að koma með :) og verður þetta skilnaðar ferð okkar þar sem ég mun flytja út helgina eftir, upp í sveit eða Mosfellsbæ :) svo allir sem geta eru velkomnir til að hjálpa mér við flutningana þann 29. mars býst við að flutningurinn byrji um 13.00 :) hlakka til að sjá ykkur sem sjáið ykkur fært að mæta...
Jæja best að koma sér og pakka niður í nokkra kassa..
er núna búin að missa um 13 kg :) gaman gaman ....
Gleðilega Páska le penguinos.....

fimmtudagur, febrúar 28

Fyrsta vikan búin :)
Já verð að segja að þetta hafi verið ERFITT en samt um leið MJÖG SKEMMTILEGT og kom ég sjálfri mér mjög á óvart.... er bara í þokkalega góðu formi... eða það held ég allavega...er samt ekkert að miða mig útfrá einhverjum heilsufrík heldur bara hvað ég gat meira heldur en ég bjóst við :) þetta er mjög gott líf að fá bara stundaskrá í hendurnar og þarf maður bara að bera ábyrgð á því að fylgja henni eftir, passa að mæta á réttan stað á réttri stundu og í rétta átfittinu... betra að vera með sundbol á sér þegar maður fer í sund og föðurlandið með sér þegar maður fer út í göngu heheheh en allavega þá ætla ég að sýna ykkur tippikal dag;
Kl. 8-9 morgunmatur...hægt að velja úr góðu og hollu morgunkorni, brauð og álegg, lýsi og hafragraut.
9-10 - annaðhvort föndur hjá iðjuþjálfurunum (þrið og Fimmt) eða Heilsu leikfimmi (mán, Mið og Föst)
10-11 Sundleikfimmi - alveg brilljant tímar, er í 35 mín og þá hefur maður tíma til að gera sig tilbúna fyrir það næsta.
11-12 Stafaganga - bara skemmtilegt.. hér eftir eigið þið eftir að sjá mig gangandi um allt með stafi.
12-12.30 matur - mjög góður fjölbreyttur og hollur matur...
12.30 - 13.00 Slökun - vá alveg brilljant hlutur :) jammmí jammmí
13-14 Spaðatímar a.k.a. babmington eða fyrirlestrar
14-15 Ganga - maður má vera með stafina líka hér :) jeiii jeiii
15-16 allskonar tímar sund, þolhringur eða fræðsla.. fór til dæmis í dag í sundkennslu... alveg tími til kominn að fá alminnilegar leiðbeiningar... Bob Harper er alveg að skila sínu....
16-17 er bara tími sem er settur á miðvikudögum en það er lengsti dagurinn... fór tildæmis á þriðjudaginn í heitapottinn eftir amstur dagsins og var það alveg æðislegt.
18-19 Kvöldmatur yfirleitt súpa, skyr, brauð og álegg + salatbar.
Já eins og þið sjáið er nóg að gera og dagurinn líður hratt sem er náttúrulega bara gott :) á morgun (föstudagur) er starfsdagur og því eru ekki tímar eða dagskrá og er ég því komin heim í Vogatunguna :)
Ætla að fara í ræktina í fyrramáli og svo fara í vinnuna í nokkra tíma..
Heimaverkefni helgarinnar fyrir mig er að horfa á sjálfan mig í speiglinum og segja "Harpa mér þykir vænt um þig/mig" læra að segja þetta við sjálfan mig og trúa því... prófið þið þetta.....
Jæja bið bara að heilsa í bili :)
Kossar og knús og takk fyrir allar kveðjurnar þær eru æðislegar :)

þriðjudagur, febrúar 26

Prógrammið byrjað á Lundinum.......
Já sæll eigum við eitthvað að ræða þetta frekar...úfff mar... ég er búin að vera og er ekkert smá ánægð og sæl með þetta allt saman.
Í gær var svona almenn fræðsla og svo í dag... já sællllll byrjaði morguninn inni hjá iðjuþjálfunum og byrjaði að föndra aðeins, er að búa til klikka flott og mjög mikilvægt tæki.. sýni ykkur seinna... svo hafði ég 5 mín að hlaupa frá einum enda húsins í hinn og fara í sund.. tókst og ég mætti á réttum tíma í sundleikfimmi bara gaman :) .. svo rétt náði ég að þurka á mér hárið og var komin út í stafagöngu...brilljant það, loksins kom pása og hádegismatur 12-13 :) svo kl. 13 var það Babínton og svo ganga úti kl. 14.00 og þá var dagskráin búin... ég fór þá í heita pottinn og lét þreytuna líða úr mér.... Og já ég er byrjuð að finna fyrir vott af strengjum :) svo er morgundagurinn ekkert minna að gera... úfff hlakka bara til :)
reyni svo að vera dugleg að blogga þegar tími gefst til...
knús harps

mánudagur, febrúar 11

*************Gleði, Gleði, Gleði************
Mörgæsin hefur fengið það staðfest að hún á pláss á Lundinum frá og með 25. febrúar í 5 vikur og mun vera búsett þar, virka daga en fær að fara alla leið heim til sín í Kópavoginn um helgar...
***************Gleði, Gleði, Gleði*************
Nú er bara að gera sig tilbúin undir nákvæmlega það sama og fer fram í "Biggest looser" þáttunum sem sýndir voru á skjá einum... einn sjúkraþjálfarinn heitir Gulli og er hann örugglega eins og þjálfarinn "Bob Harper" nóta bena nafnið á tappanum... greinilega minn maður... svo er spurning með hjúkkurnar... verða þær eins og hinn þjálfarinn masssa BootKamp típa... efast það stórlega þar sem þessi sem ég talaði við var alveg yndisleg í símann... OMG mig hlakkar bara til :) jibbí en úfff hvað þetta verður örugglega jafn erfitt og það verður gaman...
asta la vista till next time... harps

þriðjudagur, febrúar 5

Hjúkk mar mundi lykilorðið heheheh var alveg stressuð að ég myndi ekki muna það og þar af leiðandi no more blogg for miss Harpa aka le penguin... og hvað hefðir þú get þá lesandi góður? pæling sem vert er að hugsa um... mmmmoooohhhhaaaaaa... .

Nei nei úfff lífið gengur og baráttan með :) er komin á forgangslista hjá Lundinum og er búið að segja mér að ég komist inn 25. febrúar en ekkert enn staðfest... ég meina koma sooooo hringja eða senda manni bréf....

úfff er farin að hvíða mikið fyrir því að flytja í burtu frá minnum nágranna sem sér um að elda reglulega (tilraunaeldhús) alltaf eitthvað nýtt og í stað kaffibolla þvær hún þvottinn minn, sér mér fyrir öllu því stuffi og efni sem ég þarf hverju sinni og jú hún er alveg með eindæmum skemmtileg kona, aka Inga Heiða... Stefanía fékk t.d flog þegar ég sagði henni að ég væri að flytja... "nei þú getur ekki flutt í burtu frá Ingu Heiðu þið eigið alltaf að búa saman, hún er svoooo skemmtileg" jebbs þetta verður erfitt... en með tímanum finn ég örugglega leið til að vinna mig í gegnum þennan skilnað...

Fór síðasta Föstudag á Ivanov og það í fyrsta skiptið á ævinni í Þjóleikhúsið og OMG skemmti mér mjög vel, leikritið var mjög gott, leikararnir góðir, sviðsmyndin fullkomin og tónlistin frábær. Að fara í Þjóðleikhúsið var upplifelse útaffyrir sig og fannst mér það frábært elskaði stóra salinn og sætin og bara allt... langar aftur núna.... Svo á Lau.kvöld fór ég á Brúðgumann og fannst hún æði :) mæli með þessari tvennu eða allavega að sjá annað verkið.

Jæja ætla að klára að vinna í kvöld og koma mér svo heim í háttinn... og já búin að missa 7,7 kg ekki miklar breytingar þar í gangi... komin í nammibindindi úffff it is hard....

þriðjudagur, janúar 22

......og í fréttum er þetta helst...

  • Ákvað að flytja úr Kópavoginum í Mosfellsbæ og mun það gerast í kringum 1. apríl... jeiiii ejiiiii hlakka svvvoooo mikið til....
  • Er komin á forgangslista á Lundinum og vonast til að komast í prógramm núna í febrúar.
  • Vallbjörn frændi fékk vinnu á arkitektúra stofu eða var þetta kannski snyrtistofa hummm "note to self...find out what Vallis is up to....heheh en elsku frændi innilega ....Til Hamingju :) Hann er semsagt útskrifaður Constructing Architect!!!!
  • Er farin að hugsa hvernig hús ég ætla að láta kallinn teikna og byggja handa mér... preper your self my bestest vallibear.....
  • Veit ekki hvað ég á að gera þegar ég verð flutt og ekkert tilraunaeldhús sem bíður mín... Spurning að lokka konuna upp í Mosó stökum sinnum....
  • Vinna, vinna, vinna og meiri vinna...
  • Já og búin að missa 7.7kg :)

asta la vista until next time...